Færslur: 2018 Ágúst
27.08.2018 14:00
Refamótið - Laugardag
Nú er komið að því að halda árlegt Refamót Skotfélags Snæfellsness. Mótið verður haldið á æfingasvæði félagsins laugardaginn 1. september. Mótið hefst kl. 12:00 en ætlast er til þess að keppendur séu mættir um kl. 11:30 svo mótið geti hafist á réttum tíma.
Keppt verður eftir sama fyrirkomulagi og á síðasta ári þar sem skotin eru 10 skot af mismunandi færum allt frá 80m að 500m. Mótsgjaldið verður 2.000 kr. og innifalið í verðinu verða léttar veitingar. Skráning í mótið er hjá Heiðu Láru í síma 848 4250 eða á skotgrund@gmail.com. Skráningu í mótið lýkur föstudaginn 31. ágúst kl. 22:00.
Keppendum er velkomið að hafa með sér eitthvað undirlag til þess að liggja á.
![]() |
09.08.2018 07:42
Refamót Skotfélags Snæfellsness - opið mót
Refamót Skotfélags Snæfellsness verður haldið á æfingasvæði félagsins á laugardaginn kl. 12:00. Mótið hefst kl. 12:00 en ætlast er til þess að keppendur séu mættir um kl. 11:30 svo mótið geti hafist á réttum tíma.
Keppt verður eftir sama fyrirkomulagi og á síðasta ári þar sem skotin eru 10 skot af mismunandi færum allt frá 100m að 500m. Mótsgjaldið verður 2.000 kr. og innifalið í verðinu verða léttar veitingar. Skráning í mótið er hjá Heiðu Láru í síma 848 4250 eða á skotgrund@gmail.com
![]() |
- 1